Barnagleraugu

“Það er vinna að vera í skóla og svo er gaman að leika sér
og þá vill maður sjá vel”!

Börn eiga ekki að þurfa að láta notkun gleraugna hefta sig í leik og íþróttum.

Með einstakri hönnun sameina GVO barnagleraugun eiginleika hefðbundinna gleraugna og íþróttagleraugna. Umgjarðirnar eru afar sveigjanlegar og þola hnjask sem fylgir fjörugum og ærslafullum börnum.

Fjölbreytt litaúrval gera börnunum auðvelt að velja gleraugu eftir sínu höfði. Kynntu þér þessi einstöku gleraugu nánar hér á síðunni eða renndu við í verslun okkar í Mjóddinni.

Vönduð barnagleraugu

Gleraugnabúðin í Mjódd leggur metnað sinn í að bjóða börnum vandaðar og þægileg barnagleraugu frá viðurkennum framleiðendum. Við leggjum okkur fram um að veita börnum og aðstandenum persónulega og faglega ráðgjöf við val á umgjörðum og sjónglerju.

Óbrjótanleg barnagleraugu

Óbrjótanleg barnagleraugu. Þegar leikurinn stendur sem hæst er gott að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að gleraugun geti brotnað. Vönduð GVO barnagleraugu hafa farið sigurför um heiminn. Fjöldi barna um allan heim nýtur þessu að leika sér af fullum krafti og taka þátt í fjörugum íþróttum án þess að hafa áhyggjur af því að gleraugun brotni. Lofðu barninu að njóta frelsis í leik og starfi með óbrjótanlegum barnagleraugum.

Sýnishorn af nokkrum barnagleraugum

Eftir að ég fékk nýju óbrjótanlegu gleraugun þá þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur á æfingum.

Eva María

“Mamma er hætt að vera stressuð um að ég rústi gleraugunum”

Sigurður Kjartansson

15% AFSLÁTTUR 

Af íþróttagleraugum fyrir börn

Barnagleraugu

Barnagleraugun frá GVO hafa notið mikilla vinsælda, bæði hjá börnum og foreldrum. Fjölbreytt úrval er barnaumgjörðum er í boði og litaúrvalið spannar nær allan litaskalann.
Við leggjum metnað í að eiga gott úrval á lager en einnig er hægt að panta ef einhverjar séróskir er um að ræða.
Skoðaðu úrvalið hjá okkur í Gleraugnabúðinni í Mjódd.
Hafa samband
OPNUNARTÍMAR

MÁNUDAGA – FÖSTUDAGA

10:00 ~ 18:00