Um Gleraugnabúðina Silfursmára
Við leggjum okkur fram við að bjóða ávallt nýjar línur í gleraugum í jafnvægi með tímalausri hönnun.
Gleraugnabúðin Silfursmára býður vönduð gleraugu á hagstæðu verði. Hjá okkur færðu faglega og persónulega þjónustu. Við aðstoðum þig frá upphafi til enda. Gleraugnabúðin annast sjónmælingar og aðstoðar þig við val á umgjörðum.
Hjá Gleraugnabúðinni Silfursmára getur þú valið úr vönduðu úrvali af gleraugum fyrir alla aldurshópa og öll helstu verkefni:
Gleraugu | Lesgleraugu | Vinnugleraugu | Sólgleraugu | Sólgleraugu með styrk | Íþróttagleraugu | Hjólagleraugu | Barnagleraugu
Öflug liðsheild til staðar fyrir þig
Við erum öflug liðsheild, með áratuga reynslu af sölu gleraugna, sjónmælinga og slípun glerja. Við gerum okkur grein fyrir hversu mikilvægt er að fá góðar ráðleggingar frá fagfólki þegar kemur að gleraugnakaupum. Það getur skipt sköpum að rétt gler séu valin og þau slípuð í hentugar umgjarðir á sem nákvæmastan hátt, til að gleraugun nýtist sem best. Við leggjum áherslu á skjóta en jafnframt vandaða afgreiðslu og eigum stóran hluta glerja til á lager.
Starfsmenn Gleraugnabúðarinnar Silfursmára:
Jóhannes Ingimundarson, sjónfræðingur/Optometrist
Sigurjóna Ástvaldsdóttir, verslunarstjóri
Evelyn
Sigríður Fanney Guðlaugsdóttir
Sigríður Fanney Guðlaugsdóttir
OPNUNARTÍMAR
MÁNUDAGA – FÖSTUDAGA
11:00 ~ 18:00
LAUGARDAGA
11:00 ~ 15:00